Þjónustuver Vaðlaheiðarganga er aðeins með netfang vinsamlega sendið póst á veggjald@veggjald.is

Fara í efni

Spurt & svarað

Greiða eina ferð

Hvað gerist ef ekið er í gegnum göngin án þess að greiða veggjaldið?

Rukkun fyrir einni ferð er send í heimabanka á eiganda/umráðamann ökutækis ásamt innheimtugjaldi.

Hægt er að greiða veggjaldið á veggjald.is eigi síðar en 24 klst. eftir að ekið er um göngin og allt að 24 klst. áður en ferð er farin.

Hvenær er gjaldfært?

Gjaldfærsla fer eftir því hvernig greidd er fyrir ferðina: 

  1. Sé keyrt í gegnum göngin án skráningar verður sendur reikningur í heimabanka eiganda/umráðamanns ásamt innheimtugjaldi og hefur eigandi/umráðamaður 10 daga til að greiða ferðina.
  2. Ein ferð greidd á veggjald.is er gjaldfærð við kaup á ferðinni og miðast við að keyrt sé í gegnum göngin á innan við sólarhring.
  3. Stofna aðgang á veggjald.is þar sem stök ferð gjaldfærist sjálfkrafa eftir að keyrt hefur verið í gegnum göngin. Fyrirframgreiddar ferðir eru gjaldfærðar við kaup. 

Tímabundinn aðgangur

Greiðsla staka ferða í tímabundnum aðgangi var hætt 1. júní 2020. Við tók greiðsla stakra ferða sem gildir í sólarhring frá greiðslu. 

Er hægt að greiða fyrir eina ferð eftir að ekið hefur verið í gegn?

Hægt er að greiða eina ferð í síðasta lagi 24 klukkustundum eftir að ekið er í gegn. Ef ekki næst að greiða fyrir þann tíma er rukkun send í heimabanka á eiganda/umráðamann ökutækis ásamt innheimtugjaldi. 

Get ég keypt fleiri en eina ferð í einu?

Einungis er hægt að greiða fyrir eina ferð í einu. Ef fara á margar ferðir bendum við á að hagstæðara getur verið að stofna aðgang og kaupa fleiri ferðir á afsláttarkjörum. 

Finnur þú ekki það sem þú leitar að?