Spurt & svarað

Skráning/afskráning

  • Hvað er leyfilegt að eiga margar fyrirframgreiddar ferðir?

    Einungis er hægt að eiga 120 ferðir í einu á hverjum aðgangi

  • Hvernig virkar mánaðaráskriftin?

     Í mánaðaráskrift greiðir þú fasta upphæð óháð fjölda ferða. Áskrift endurnýjast sjálfkrafa að mánuði liðnum frá kaupum og þarf að segja upp fyrir endurnýjun.


    Ökutæki sem kaupa á áskrift fyrir þarf að vera skráð á þitt "heima svæði".

     

    Eingöngu er mánaðaráskrift í boði fyrir fólksbíla (undir 3,5tonn) og gildir ein áskrift fyrir eitt ökutæki.

    Ef ökutæki bilar eða er seldur þarf að senda tölvupóst á þjónustuver veggjald@veggjald.is og óska eftir breytingu á ökutæki.

  • Er kostnaður við skráningu?

    Nei, skráning á veggjald.is er án endurgjalds.

  • Hversu mörg ökutæki má skrá?

    Hægt er að skrá allt að tíu ökutæki undir 3,5 tonnum og ótakmarkaðan fjölda ökutækja 3,5 tonn og þyngri. 

    Hægt er að skipta út ökutækjum á reikningum á einfaldan hátt undir hlekknum "ökutæki"

  • Hver ber ábyrgð á skráðum upplýsingum á veggjald.is?

    Sá sem skráir upplýsingar á veggjald.is ber ábyrgð á því að þær séu réttar.

  • Þarf ég að skrá mig fyrir hverja ferð?

    Nei, þú þarft þess ekki. Hægt er að greiða veggjaldið á 3 vegu.

    Keyra í gegn og reikningur sendur í heimbanka hjá umráða aðila / eiganda ökutækis ef engin greiðsla eða skráning finnst innan 24 klst. frá því ferð var farin.

    Stofna aðgang, skrá ökutæki og greiðslukort og sjálfkrafa er skuldfært eftir hverja ferð. Hægt að kaupa afsláttaferðir og skrá allt að 10 ökutæki (undir 3,5t).

    Ef þú vilt borga staka ferð þá skráir þú ökutækið og greiða á heimasíðunni www.veggjald.is / www.tunnel.is innan 24 klst. fyrir eða eftir ferð í gegnum göngin.

  • Hvað gerist við eigendaskipti ökutækja?

    Við eigendaskipti ökutækis og/eða aðrar breytingar ber notanda að afskrá númer ökutækisins á veggjald.is. Einfalt er að skrá annað ökutæki, eina sem þarf að gera er að skrá nýtt skráningarnúmer. Þessi breyting hefur ekki áhrif á fyrirframgreiddar ferðir, enda eru þær tengdar aðgangi hvers og eins ökumanns en ekki einstaka ökutæki.

  • Hvað gerist ef ökumaður ekur í gegnum göngin á ökutæki sem hann á ekki sjálfur?

    Umráðaaðili/eigandi ökutækis fær rukkun fyrir einni ferð auk innheimtugjalds í heimabanka. Hægt að kaupa eina ferð á veggjald.is óháð því hver er skráður eigandi ökutækis.

  • Hvað gerist ef ökutæki er skráð á nýjan notanda ?

    Sá sem var með ökutækið skráð fær senda sjálfvirkan póst um að ökutæki hafi verið útskráð af hans aðgangi.

  • Á að skrá einkanúmer eða fastanúmer ökutækis?

    Skrá skal það númer sem er á númeraplötu ökutækis (einkanúmer).

     

    Ef einkanúmer er fært á milli ökutækja þarf að endurtaka þessa skráningu þannig að rétt ökutæki er skráð og útskráð eldra ökutæki þar sem það ökutæki breytist sjálfkrafa í fastanúmer ökutækis.

  • Hvernig afskrái ég ökutæki af aðgangi mínum?

    Í tölvu: Fyrst þarf að skrá sig inn á „mitt svæði“ á https://mitt.veggjald.is/login  - smellir á nafnið þitt/strikin 3 efst í hægra horninu, velur „ökutæki“ og setur ökutækið í ruslafötuna.


    Í appinu: smellir á strikin 3 neðst í hægra horninu, velur „ökutæki“  og setur ökutækið í ruslafötuna.

  • Hvernig skrái ég greiðslukort á aðgang minn?

    Í tölvu: Fyrst þarf að skrá sig inn á „mitt svæði“ á https://mitt.veggjald.is/login - smellir á nafnið þitt/ strikin 3 efst í hægra horninu, velur „greiðslukort“  velur skrá greiðslukort, setur inn greiðslukortanúmerið og staðfestir.


    Í appinu: smellir á strikin 3 neðst í hægra horninu, velur skrá „greiðslukort“, setur inn greiðslukortanúmer og staðfestir.

  • Hvernig afskrái ég greiðslukort af aðgangi mínum?

    Í tölvu: Fyrst þarf að skrá sig inn á „mitt svæði“ á https://mitt.veggjald.is/login - smellir á nafnið þitt/strikin 3 efst í hægra horninu, velur „greiðslukort“ og setur greiðslukortið í ruslafötuna.


    Í appinu: smellir á strikin 3 neðst í hægra horninu, velur „greiðslukort“  og setur greiðslukortið í ruslafötuna.

  • Hvar greiði ég fyrir eina ferð?

    Hægt er að greiða fyrir eina ferð:

    1. Greiða eina ferð á www.veggjald.is  -  Hver ferð gildir sólarhring frá greiðslu. 
    2. Ef keyrt er í gegn án skráningar stofnast krafa sjálfkrafa í heimabanka umráðaaðila/eiganda ökutækis án viðbótarkostnaðar.
    3. Stofna aðgang á www.veggjald.is  - þar sem stök ferð gjaldfærist sjálfkrafa og hægt að kaupa fleiri ferðir á afsláttarkjörum. 
  • Ég hef stofnað aðgang, hvernig borga ég fyrir ferðina?

    Þegar þú hefur stofnað aðgang og skráð inn greiðslukort og bílnúmer, þarft þú ekki að gera neitt frekar. Þú ekur í gegn og færð kvittun fyrir ferðinni í tölvupósti.

  • Þarf að borga í göngin þegar Víkurskarð er lokað?

    Já það þarf alltaf að greiða fyrir ferð í gegnum Vaðlaheiðargöng. 

Verð

  • Hvað kostar að vera í mánaðaráskrift?

    Hægt er að sjá verð fyrir mánaðaráskrift í gjaldskrá með því að smella hér.

  • Er innheimt aukagjald fyrir aftanívagna?

    Nei, ekkert gjald er fyrir aftanívagna í gegnum Vaðlaheiðargöng.

  • Hvernig fæ ég kvittun ?

    Ef þú ert að borga staka ferð þá smellir þú á "sækja kvittun" hnappinn sem birtist þegar þú hefur staðfest greiðslukortið þitt, kvittun hleðst þá í símann/tölvuna sem þú borgar í.


    Ef þú hefur þegar stofnað aðgang eru allar kvittanir undir greiðslusaga. Ef þú færð senda kröfu í heimabanka getur þú haft samband við þjónustuver með því að senda póst á  veggjalds@veggjald.is og fengið kvittun senda.

  • Hvað kostar að aka í gegnum göngin á dráttarvél?

    Eins og staðan er núna er ekki tekið gjald fyrir dráttarvélar.


    Við biðjum ökumenn slíkra véla að vera ekki á ferðinni á háanna tíma sem er í kringum 08:00 á morgnanna, 12:00-13:00 og svo á kvöldin á milli 16:30-19:00

  • Fyrnast fyrirframgreiddar ferðir?

    Nei, fyrirframgreiddar ferðir fyrnast ekki.

  • Hvað kostar að aka í gegnum Vaðlaheiðargöng? Sjá hér: Verð & greiðsluleiðir

  • Eru afsláttarkjör í boði?

    Skráðum notendum bjóðast afsláttarkjör. Hægt er að kaupa 10 eða 50 ferðir fyrirfram fyrir ökutæki 3500 kg. og undir. Því fleiri ferðir sem eru keyptar, þeim mun lægri upphæð greiðist fyrir hverja ferð.


    Farið er eftir heildarþyngd ökutækis samkvæmt skráningu hjá Samgöngustofu.


    Fyrirframgreiddar ferðir fyrnast ekki. 


    Nánar um verð og greiðsluleiðir

  • Er innheimt aukagjald fyrir hjólhýsi, fellihýsi eða tjaldvagn aftan í fólksbílum undir 3,5 tonnum?

    Nei, ekkert aukagjald er innheimt fyrir hjólhýsi, fellihýsi eða tjaldvagn.

  • Er innheimt aukagjald fyrir tengivagna við flutningabíla?

    Nei, aukagjald fyrir tengivagna er ekki innheimt.

  • Hvert er veggjaldið fyrir húsbíla?

    Um húsbíla gildir það sama og aðra bíla. Séu þeir undir 3,5 tonnum að þyngd er innheimt sama gjald og fyrir fólksbíla. Farið er eftir skráðri heildarþyngd ökutækja. Ökutækjaskrá Samgöngustofu segir til um þyngd ökutækja.

    Sjá nánar hér

  • Takið þið American express kort?

    Já, í flestum tilfellum er hægt að nota AMEX kortum en við mælum með að önnur kort séu notuð frekar.

  • Takið þið gjafagreiðslukort?

    Nei, ekki er hægt að nota gjafagreiðslukort hjá okkur. 

Innheimta

  • Hversu hátt er innheimtugjaldið?

    Frá og með 3.nóv. 2025 er ekkert innheimtugjald lagt ofan á veggjaldið, sama stakt gjald er hvort sem greitt er á www.veggjald.is eða krafa send í heimabanka.

  • Hvað gerist ef ekið er í gegnum göngin án þess að greiða veggjaldið?

    Rukkun fyrir einni ferð er send í heimabanka á eiganda/umráðamann ökutækis. Ekkert innheimtugjald er lagt ofan á greiðslur í heimabanka frá og með 3.11.2025 sjá nánar í verðskrá.


    Hægt er að greiða veggjaldið á veggjald.is eigi síðar en 24 klst. eftir að ekið er um göngin og allt að 24 klst. áður en ferð er farin.

  • Hvað gerist þegar fyrirframgreiddar ferðir eru búnar?

    Þegar afsláttarferðir klárast verður greiðsla tekin fyrir hverja ferð af skráðu korti og gildir þá almenn verðskrá. Skráningarhafi getur farið í stillingar og beðið um að láta sig vita þegar afsláttarferðir eru að verða búnar. 

  • Er hægt að borga fyrir önnur en eigin ökutæki?

    Ekki þarf að vera umráðamaður ökutækis til að skrá það á veggjald.is. Innskráður aðili velur hvaða bíla hann vill hafa skráða og getur bætt við og fjarlægt að vild.


    Vakið er athygli á að ef ökutæki er ekki skráð á veggjald.is er rukkun send í heimabanka á eiganda/umráðamann ökutækis. 

  • Hvenær er gjaldfært?

    Gjaldfærsla fer eftir því hvernig greidd er fyrir ferðina: 


    1. Sé keyrt í gegnum göngin án skráningar verður sendur reikningur í heimabanka eiganda/umráðamanns og hefur eigandi/umráðamaður 10 daga til að greiða ferðina. Ekkert innheimtugjald er lagt ofan á greiðslur í heimabanka frá og með 3.11.2025 sjá nánar í verðskrá.
    2. Ein ferð greidd á veggjald.is er gjaldfærð við kaup á ferðinni og miðast við að keyrt sé í gegnum göngin á innan við sólarhring.
    3. Stofna aðgang á veggjald.is þar sem stök ferð gjaldfærist sjálfkrafa eftir að keyrt hefur verið í gegnum göngin. Fyrirframgreiddar ferðir eru gjaldfærðar við kaup. 

Erlend bílnúmer

  • Hvaða reglur gilda um erlenda ökumenn á bílum með íslenskum skráningarnúmerum?

    Um þá gilda sömu reglur og aðra notendur. Öllum sem aka um göngin ber að greiða veggjald. Hafi númer ökutækis ekki verið skráð inn á veggjald.is er hægt að greiða fyrir staka ferð, eigi síðar en 24 tímum eftir að ekið er um göngin. Ef ekki er greitt er veggjaldið innheimt af skráðum umráðamanni ökutækisins.

  • Er hægt að skrá erlend bílnúmer á veggjald.is?

    Já, það er hægt að skrá ökutæki á erlendum númerum til jafns við ökutæki á íslenskum númerum.

Bifhjól / reiðhjól

  • Eru hjólreiðar heimilar í Vaðlaheiðargöngum?

    Nei, hjólreiðar eru ekki heimilar í göngunum.

  • Eru bifhjól gjaldskyld?

    Nei, akstur bifhjóla í gegnum göngin er án endurgjalds.

Um göngin

  • Hvað eru Vaðlaheiðargöng há?

    Leyfð hæð ökutækja í gegnum göngin er 4,2m

  • Hver á Vaðlaheiðargöng?

    Vaðlaheiðargöng hf.


    Allt um framkvæmdina má lesa á vadlaheidi.is

  • Í hvað fara tekjurnar af veggjaldinu?

    Að greiða niður framkvæmdarlán og rekstur ganganna.

  • Hver er hámarkshraði í göngunum?

    Hámarkshraði er 70 km/klst. Sjálfvirkar löggæslumyndavélar geta tekið ljósmyndir af umferðalagabrotum.

  • Hvað eru Vaðlaheiðargöng löng?

    Með vegskálum eru göngin um 7,5 km. Þau eru með tveimur akreinum, einni í hvora átt.

Greiða eina ferð

  • Get ég keypt fleiri en eina ferð í einu?

    Einungis er hægt að greiða fyrir eina ferð í einu. Ef fara á margar ferðir bendum við á að hagstæðara getur verið að stofna aðgang og kaupa fleiri ferðir á afsláttarkjörum. 

  • Er hægt að greiða fyrir eina ferð eftir að ekið hefur verið í gegn?

    Hægt er að greiða eina ferð í síðasta lagi 24 klukkustundum eftir að ekið er í gegn. Ef ekki næst að greiða fyrir þann tíma er rukkun send í heimabanka á eiganda/umráðamann ökutækis. 


    Ekkert innheimtugjald er lagt ofan á greiðslur í heimabanka frá og með 3.11.2025 sjá nánar í verðskrá.

  • Hvenær er gjaldfært?

    Hvenær er gjaldfært?

    Gjaldfærsla fer eftir því hvernig greidd er fyrir ferðina: 


    1. Sé keyrt í gegnum göngin án skráningar verður sendur reikningur í heimabanka eiganda/umráðamanns og hefur eigandi/umráðamaður 10 daga til að greiða ferðina. Ekkert innheimtugjald er lagt ofan á greiðslur í heimabanka frá og með 3.11.2025 sjá nánar í verðskrá.
    2. Ein ferð greidd á veggjald.is er gjaldfærð við kaup á ferðinni og miðast við að keyrt sé í gegnum göngin á innan við sólarhring.
    3. Stofna aðgang á veggjald.is þar sem stök ferð gjaldfærist sjálfkrafa eftir að keyrt hefur verið í gegnum göngin. Fyrirframgreiddar ferðir eru gjaldfærðar við kaup. 
  • Hvað gerist ef ekið er í gegnum göngin án þess að greiða veggjaldið?

    Rukkun fyrir einni ferð er send í heimabanka á eiganda/umráðamann ökutækis. Ekkert innheimtugjald er lagt ofan á greiðslur í heimabanka frá og með 3.11.2025 sjá nánar í verðskrá.


    Hægt er að greiða veggjaldið á veggjald.is eigi síðar en 24 klst. eftir að ekið er um göngin og allt að 24 klst. áður en ferð er farin.