Notkunarskilmálar Vaðlaheiðarganga
- Í þessum skilmálum er vísað til Vaðlaheiðarganga hf. sem rekstraraðila Vaðlaheiðarganga. Vaðlaheiðargöng hf. reka vefsíðuna veggjald.is og tunnel.is sem eru rafrænn vettvangur sölu ferða í Vaðlaheiðargöng ásamt appi, tengt síðunni, sem notendur geta nýtt sér.
- Um heimild Vaðlaheiðarganga hf. til gjaldtöku vegna notkunar Vaðlaheiðarganga, vísast til 6.gr. laga nr. 97/2010 um stofnun hlutafélaga um vegaframkvæmdir.
- Vaðlaheiðargöng hf. ber ábyrgð á vefsíðunum veggjald.is og tunnel.is, þeim upplýsingum sem þar koma fram og upplýsingum sem viðskiptavinir Vaðlaheiðarganga hf. setja þar inn í því skyni að stofna til viðskipta við félagið.
- Með notendum er átt við aðila, einstaklinga og lögaðila, sem nýta sér þjónustu Vaðlaheiðarganga hf. með því að nota vefsíðuna veggjald.is, tunnel.is og/eða veggjaldsappið.
- Notendur bera ábyrgð á að kynna sér skilmála þessa áður en þeir nýta sér þá þjónustu sem skilmálar þessir fjalla um. Með því að stofna til viðskipta í gegnum veggjald.is/tunnel.is samþykkja notendur skilmála þessa og lýsa því jafnframt yfir að þeir muni í viðskiptum sínum við Vaðlaheiðargöng hf. hlíta skilmálum þessum og eftir atvikum þeim breytingum sem á þeim kunna að verða gerðar.
- Skilmálar þessir gilda um þjónustu Vaðlaheiðarganga hf., kt. 700311-0310, í tengslum við heimasíðuna veggjald.is, tunnel.is og veggjaldsappið, en Vaðlaheiðargöng hf. eiga og reka vefsíðunar og appið í tengslum við sölu ferða í gegnum Vaðlaheiðargöng undir Vaðlaheiði.
- Notandi verður að vera rétthafi þess símanúmers og eða netfangs sem hann skráir í þjónustuna.
- Til að geta notað þjónustu veggjalds.is/tunnel.is/Vaðlaheiðarganga hf. þarf notandi að skrá sig í gegnum
www.veggjald.is, www.tunnel.is eða veggjaldsappið. Sendu okkur tölvupóst á veggjald@veggjald.is og við aðstoðum þig eins fljótt og auðið er. Bent er á að hægt er að fá allar upplýsingar um þjónustu, ganga frá kaupum á ferðum og fá svör við algengum spurningum á www.veggjald.is.
- Eingöngu er hægt að greiða fyrir þjónustuna með greiðslukortum á www.veggjald.is/www.tunnel.is. Ef ekið er í gegn án skráningar er rukkun send í heimabanka til eiganda/umráðamanns ökutækis.
- Notandi skuldbindur sig til að hlíta þeim kjörum og skilmálum sem settir eru hverju sinni og finna má nánari upplýsingar um í gjaldskrá á vefnum www.veggjald.is/www.tunnel.is.
- Vaðlaheiðargöng hf. áskilur sér rétt til að breyta gjaldskránni á hverjum tíma en það skal þó tilkynnt með a.m.k. 14 daga fyrirvara annað hvort á vefsíðunni veggjald.is, tunnel.is, með tilkynningum í gegnum veggjaldsappið, með SMS eða tölvupósti á notendur þjónustunnar eða öðrum sannanlegum hætti.
- Verðskrá fyrir þjónustuna á hverjum tíma er birt á vefnum www.veggjald.is/www.tunnel.is og er hún hluti af þessum samningi.
- Notandi heimilar gjaldtöku af greiðslukorti sínu sem hann gefur upp vegna greiðslu fyrir þjónustuna sem honum er veitt samkvæmt uppgefinni gjaldskrá á hverjum tíma. Takist ekki að skuldfæra greiðslukort áskilur Vaðlaheiðargöng hf. sér rétt til að innheimta greiðsluna eftir öðrum leiðum.
- Notandi þarf að gefa upp nafn, netfang, farsímanúmer, ökutækjanúmer, greiðslukortanúmer og aðrar nauðsynlegar upplýsingar til að fá aðgang að þjónustunni.
- Í samræmi við 2.mgr.6.gr. laga nr. 97/2010 ber eigandi ökutækis eða umráðamaður, ef um kaupleigu er að ræða, ábyrgð á greiðslu gjalda vegna notkunar á Vaðalheiðargöngum. Gjöldin eru aðfararhæf án undangengins dóms eða sáttar.
- Vaðlaheiðargöng hf., sem ábyrgðaraðili vinnslu í skilningi 6.tl. 1.mgr. 3.gr. laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, safnar og vinnur eftirfarandi persónuupplýsingar um notendur:
I. Upplýsingar sem notandi veitir við skráningu í þjónustuna, sbr. 9. gr. hér að framan, eða í samskiptum við Vaðlaheiðargöng hf. í tengslum við þjónustuna, svo sem í tölvupóstsamskiptum eða í gegnum þjónustuver, þegar notandi nær í veggjaldsappið, sem og aðrar upplýsingar sem notandi veitir í tengslum við skráningu.
II. Allar upplýsingar sem notandi veitir og sem Vaðlaheiðargöng hf. safnar í samræmi við framangreint, eru vistaðar í gagnagrunni Vaðlaheiðarganga hf. og á öruggum netþjónum Vaðlaheiðarganga hf. og unnið með þær þar. Allar greiðsluupplýsingar sem notandi veitir eru veittar í gegnum örugga greiðsluþjónustu Valitors, þar sem þær eru dulkóðaðar og vistaðar í öruggri hýsingu, en Vaðlaheiðargöng hf. safnar hvorki né vinnur með greiðsluupplýsingar notenda.
III. Við meðferð persónuupplýsinga sem Vaðlaheiðargöng hf. safnar er þess ávallt gætt að þær séu unnar með sanngjörnum, málefnalegum og lögmætum hætti og að öll meðferð þeirra sé í samræmi við vandaða vinnsluhætti persónuupplýsinga, sem og uppfylli að öðru leyti meginreglur laganna um gæði gagna og vinnslu, sbr. 1. mgr. 8. gr. laga nr. 90/2018.
IV. Notandi á rétt á að fá vitneskju um þær upplýsingar um hann sem unnið er með eða hefur verið unnið með í samræmi við 2.mgr. 18. gr. laga nr. 90/2018, sbr. þó 3.mgr. sömu greinar um takmarkanir á upplýsingarétti hins skráða.
V. Notandi á jafnframt rétt á að rangar, villandi eða ófullkomnar persónuupplýsingar séu leiðréttar, við þær aukið eða þeim eytt, sbr. 1. mgr. 20.gr. laga nr. 90/2018. Þá á notandi rétt á að persónuupplýsingum sé eytt, ef ekki er lengur málefnaleg ástæða til að varðveita þær, en undantekning á þessu eru persónuupplýsingar sem félaginu er skylt að varðveita, enda standi lagaboð til þess.
VI. Vaðlaheiðargöng hf. stendur vörð um persónuupplýsingar notanda og eru þær almennt ekki framseldar til þriðja aðila án samþykkis viðkomandi eða til að fullnægja lagaskyldu. Vaðlaheiðargöng hf. kann þó að fela öðrum aðila að annast vinnslu persónuupplýsinga, svo sem vegna þjónustu eða samstarfs þriðja aðila við Vaðlaheiðargöng hf., enda sé þá sannreynt að umræddur vinnsluaðili geti framkvæmt viðeigandi öryggisráðstafanir og viðhaft innra eftirlit, sbr. 25.gr. laga nr. 90/2018.
VII. Að öðru leyti en framan greinir fer um meðferð persónuupplýsinga Vaðlaheiðarganga hf. í samræmi við gildandi lög og reglur hverju sinni sem og persónuverndarstefnu Vaðlaheiðarganga hf. - Notandi ber ávallt alla ábyrgð á tjóni vegna rangrar notkunar á þjónustunni. Stafi tjónið af röngum innslætti eða af öðrum orsökum, er það á ábyrgð notanda og ber Vaðlaheiðargögn hf. enga ábyrgð á tjóni af þessum sökum. Sá sem skráir upplýsingar á veggjald.is ber ábyrgð á því að þær séu réttar.
- Notandi er ekki undanskilinn greiðslu gjalds vegna þjónustu Vaðlaheiðarganga hf. þó þjónustan sé ekki aðgengileg af einhverjum ástæðum, heldur ber honum þá að nýta aðra greiðslumöguleika til greiðslu veggjalda.
- Hafi notandi notað þjónustuna og sannanlega greitt veggjald í réttum gjaldflokki yfir ákveðið tímabil, ökutæki hans skráð í þjónustuna og verið skráð í samræmi við 9. gr. skilmála þessara en notandi telur að gjaldtakan sé að einhverjum ástæðum ekki rétt, ber notanda að leita til þjónustuvers Veggjalds um leiðréttingu á gjaldtökunni.
- Notandi ber ábyrgð á greiðslum til Vaðlaheiðarganga hf. vegna umbeðinnar þjónustu frá farsíma sínum óháð því hver notar farsímann.
- Notandi heimilar Vaðlaheiðargöngum hf. að senda honum tilkynningar í pósti, tölvupósti, með SMS/MMS eða í gegnum app skilaboð um efni sem varðar þjónustuna.
- Vaðlaheiðargöngum hf. er heimilt að loka á þjónustu við notanda fyrirvaralaust, ef Vaðlaheiðargöng hf. hefur ástæðu til að ætla að notandi misnoti þjónustuna eða hafi gefið upp rangar upplýsingar við skráningu. Sama á við ef notandi er kominn í vanskil eða ekki reynist unnt að gjaldfæra skráð greiðslukort fyrir umbeðinni þjónustu.
- Vaðlaheiðargöng hf. bera enga ábyrgð á tjóni, beinu eða óbeinu, sem notendur verða fyrir vegna notkunar Vaðlaheiðarganga sem rekja má til athafna og/eða athafnaleysis notenda, óviðráðanlegra ytri aðstæðna og/eða orsaka, náttúruhamfara af hvaða tagi sem er eða annarra þátta sem Vaðlaheiðargöng hf. hefur ekki áhrif á.
Notendur bera ábyrgð á öllu tjóni sem þeir kunna að valda á Vaðlaheiðargöngum og/eða mannvirkjum og búnaði þeim tengdum. - Notandi getur tilkynnt um uppsögn á þjónustunni með því að senda tölvupóst á veggjald@veggjald.is eða lokað sjálfur aðgangi á sínum svæði.